Oddan hér

þar sem allt getur gerst!!!

04.11.2008 10:07:07 / okra

Nóvember gengin í garð

Já sæl verið þið öll sömul!

Nú er nóvembermánuður genginn í garð og styttist óðfluga í jólin öss öss.

Um síðustu helgi skrapp mín í sveitina með gamla settinu og fórum við í sláturgerð með Sólrúnu syss. Það var mikið fjör hjá okkur og við skemmtum okkur konunglega við þetta, mikið glens og mikið gaman. Alltaf gott að komast í sveitina og hlaða batteríin. Kom alveg endurnærð heim. Kistan orðin full að gómsætu kjeti og ekki á mar eftir að svelta í vetur hehe.

 Skólinn gengur sinn vanagang, fullt af verkefnum framundan, ritgerðir og fleira. Bara gaman, og rosalega verður gott að komast í frí eftir prófin, ekki langt í þau skal ég segja ykkur, vonandi að mar nái öllu svo mar fái nú langt frí.

Álfhildur mín á afmæli í dag, TIL LUKKU GAMLA MÍN.

Rósa María vinkona átti afmæli í gær og vil ég óska henni innilega til hamingju með það. Kiss&knús til ykkar beggja.

Ég kveð í sinni þangað til næst...................

bæjó



» 1 hafa sagt sína skoðun

28.10.2008 09:39:07 / okra

Blogg blogg blogg blogg blogg blogg

 

Blogg blogg blogg blogg blogg blogg blogg blogg blogg

 

Jæja ætla að gefa ykkur smá innsýn í skólalífið!!!!!!!!!!!!!

 

Það gengur alveg svakalega vel hjá mér í skólanum þó ég segi sjálf frá,

Ég er bara að brillera í þessum skóla, mér hefur bara aldrei gengið eins vel í skóla og nú, enda    

aldrei verið eins tilbúin og nú.

 

Í annarri viku var smá könnun í stærfræði til að sjá hvar nemendur væri staddir í þeim áfanga og

viti menn minns rétt skreið yfir það og var svo happy og átti bara ekki til orð.

Svo eru einkunnirnar mínar bara allar yfir 7 og er ég ógó ánægð með það.

 

Í síðustu viku var lokapróf úr einni stærðfræðibókinni og hélt ég eða var viss um að ég hefði ekki

náð, en viti menn þegar ég fór að athuga einkunina þá dansaði mín stríðsdans og hoppaði af

gleði, já ég náði var ógó stolt og montin. ÉG GET ÞETTA ALVEG!!!!

 

Þetta er mikil vinna og sem betur fer ákvað ég að vinna ekkert með skólanum, er bara áfram með

íþróttahúsið sem eru tveir dagar í viku þannig að ég fæ smá aukapening í vasann svo lifir mar

bara á kjellinum hehe ég meina hvað annað, á einhverju verður mar að lifa híhí.

 

Hópurinn sem ég er í er alveg frábær, við erum svo dugleg að hjálpa hvort öðru og skiptir þar

rosalega miklu máli, enda er mar að standa sig vel, mar vill nú ekki hellast úr lestinni.

 

Ég held að þessi vika sem er núna sú erfiðasta á önninni, mikið af verkefnum og erum við að

drukkna hérna, það er sko engin miskunn hjá þessum kennurum. Þeir eru alveg að kæfa okkur á

endalausum verkefnum, en einhvernveginn kemst mar í gegnum þetta enda með gott fólk með

sér í þeim.

 

Hef lítið sem ekkert farið út á lífið, kannski tvisar eftir að skólinn byrjaði, enda hefur mar ekki

mikinn tíma í það skal ég segja ykkur, ég þurfti meira að segja að sleppa laufskálaréttinni sem er

árlegur viðburður fyrir norðan og ég komst ekki og var svaka sár yfir því en ég skal sko komast á

næsta ári og hananú!!!!

 

Annars gengur lífið sinn vanagang, svo er ég farin að kvíða jólunum þar sem stelpurnar verða hjá  

pabba sínum og ég má bara ekki hugsa til þess þá leggst yfir mig kvíði og fæ kökk í hálsinn, en

svona er þetta bara, mar verður bara að sætta sig við þetta og gera sem best úr því.

 

Amalíu og Freyju gengur rosalega vel í skólanum líka, eru voða duglegar að læra, Amalía er á fullu

að spila líka, bæði á fiðlu og harmonikku, ég er svo stolt af henni hún er svo dugleg, svo eru

tónleikar bráðum og ætla ég að reyna að komast norður svo ég geti nú séð og heyrt hana spila á

nikkuna. Freyja byrjaði á klarinett og gengur alveg ótrúlega vel, kennarinn hélt að hún myndi ekki

ráða við hljóðfærið og var ekkert smá hissa hvað hún var fljót að ná tökum á því, og er svakalega

dugleg að æfa sig.

 

Já þannig að allt gengur vel hjá mér og mínum, meira að segja Hilmar skellti sér í tölvuskólann og

Honum gekk rosalega vel, náði og ætlar sér svo að halda áfram, ég er mjög stolt af honum.

 

Jæja kæru vinir nú hef ég gefið ykkur smá innsýn í líf mitt þessa dagana, vonandi verður ekki

mjög langt í næsta blogg en ég lofa engu.

 

Hafið það gott og þangað til næst..............................

 

Bæjó

 

P.s. Marína á afmæli í dag, TIL LUKKU MEÐ DAGINN SKVÍS KISS&KNÚS


» 1 hafa sagt sína skoðun

26.08.2008 08:40:17 / okra

Versló helgin og Skólinn: til í slaginn

 

Hér kemur nýtt blogg handa ykkur elskurnar mínar.

Verlsunarmannahelgin er löngu liðin og ágústmánuðurinn er brátt á enda.

Ég skaust norður í land um versló, í Skagafjörðinn að sjálfsögðu, þar hitti ég æðislegasta fólkið í heimi, Silla, Árni Gísli og Helga, nú svo að sjálfsögðu Sólrúnu stóru syss og fjölskyldu hennar. Föstudagskveldið fór ég á krókinn og hitti þar aðalfólkið sem ég nefndi hérna áður og við sátum við drukk og spiluðum kana, bara gaman, svo var tekið í smá drykkjuspil og kíktum svo aðeins á barinn, en vá það var bara gjörsamlega tómur bærinn hehe ekki skrýtið þar sem allir voru að heiman, en bara gaman að hitta þetta yndislega fólk sem ég sakna á hverjum degi. Fékk gistingu hjá Sillu og svaf bara fram að hádegi aldrei þessu vant, er yfirleitt komin á fætur milli 9 og 10 ef ég er í fríi. Takk Silla mín fyrir mig.

 

Laugardagurinn var bara rólegur hjá mér, eða frekar þunnur hehe, þannig að mín lá fyrir framan tv hjá syss og meira að segja sofnaði í sófanum hehe, svo ákvað ég að taka smá rúnt um sveitina, og kíkti svo í eina heimsókn til hennar Guggu og sat ég þar alveg í 2 eða 3 tíma, vá hún hlýtur að vera komin með ógeð hehe, nei segi bara svona, hver fær ógeð af mér HA??

 

Sunnudagurinn var líka frekar rólegur, þar til kveldið nálgaðist, þá var opnaður bjór og við sátum við eldhusborðið og var mikið spjallað og drukkið, já tek það fram að Sigurgeir bróðir og konan hans Inga voru líka í heimsókn, svo komu þau frá Eyhildarholti, Didda og Veigar og var mikið fjör á bæ. Svo var brunað í Árgað og að sjálfsögðu kom besti bílstjóri í heimi hún Salmína okkar og skutlaði okkur á þetta feikna ball með Geira vini mínum hehe. Þetta var ógó skemmtilegt ball og þetta ball klikkar aldrei, en troðningurinn var rosalegur og hef ég bara aldrei lent í svona troðningi á þessu balli, mar var eins sardína í dós að reyna komast að miðasölunni, en það hafðist að lokum og þegar inn var komið tók gleðin við völd og skemmti mar sér konunglega eins og vanalega. FRÁBÆRT SVEITABALL

 

Mánudagurinn var bara þokkalegur, mar var frekar þreyttur frekar en þunnur, enda var mikið dansað og aumingja fóturinn minn var ekki sáttu með dansinn, var frekar aum í veika fætinum enda allir að stíga á mig og já auðvitað alltaf á veika fótinn, alveg típýskt finnst ykkur ekki hehe.

 

Þriðjudagurinn eftir versló, þá ákvað mín að bruna vestur á Ísfjörð, já ég meina það, vá hvað það var gaman að keyra þessa leið, ég fer þó ekki þessa leið á næstunni, en mikið er fallegt þarna fyrir vestan, við mæðgurnar dóluðum bara vestur og stoppuðum oft á leiðinni, fór meðal annars í berjamó og vá ég hef bara aldrei séð svona stór krækiber, voru bara eins og bláber ef ekki stærri. Jæja við komumst svo á Ísó eftir 7 tíma akstur, og mikið var gott að komast úr bílnum og hvíla bossann hehe , hann var orðinn frekar aumur eftir aksturinn. En við komumst á leiðarenda og ég hitti tengdamömmu í fyrsta sinn, fín kona og mér líst vel á hana, og svo systir hans Hilmars, Helena 14 ára, bara gaman af henni, bara ekta unglingur hehe.

 

Við brölluðum margt fyrir vestan, fórum í sund, löbbuðum um bæinn, fórum í Raggagarð sem er staðsettur á Súðavík, keyrðum yfir til Flateyrar og þar var þessi fínasta strönd og krakkarnir fengu smá útrás þar, en kalt var í veðri þannig að það var stoppað stutt, svo keyrðum við til Suðureyrar, rosalega er gaman að sjá þessi litlu sjávarþorp, og ótrúlegt að fólk skuli enn búa á þessum stöðum, vá ég gæti ekki búið þarna, ónei ég er svona melló borgarbúi þar sem ég bý nú sjálf í sjávarþorpi, en kommon ég er bara 40 mín í borgina hehe.

 

Svo héldum við heim á leið á laugardeginum, fórum hinn hringinn, mikið af malarvegum en vá hvað þetta var gaman, fullt fullt að sjá á leiðinni, til dæmis Dynjandi stór foss og fallegur, svo er landslagið bara svo fallegt þarna, og vá hvað sumar brekkurnar voru brattar, dísus ég varð pínu smeik á sumum köflum en hei við komumst heil heim, já við komum við á Hótel Bjarkarlundi ef einhver kannast við það nafn, en það er staðurinn sem Dagvaktin var tekin upp, hehe bara gaman af því.

 

Vorum 10 tíma heim, en mikið var þetta skemmtilegt ferðalag hjá okkur og allir komu sáttir heim, svo tók við hreingerningarvika, allt var þrifið og þar sem ég hætti við að flytja upp á völl þá var farið að hagræða hér í litlu íbúðinni minni, reyna að koma öllum fyrir þegar allir eru heima, sem sagt 6 manns ásamt hundinum þegar við erum öll, stór fjölskylda hehe.

 Myndir af ferðalaginu eru hér til hægri undir nafninu Ferðalag norður og vestur endilega kíkið á þær, bara skemmtilegar myndir á reyndar eftir að bæta fleirum inn. NJÓTIÐ

Fjárfesti í hornskrifborði sem ég fékk á 3000.- en svona skrifborð kostar um 7-8þús. Góð kaup finnst mér allavega.

 

Núna er mína sest á skólabekkinn, byrjaði í síðustu viku í undirbúningsnámskeiði í stæðfræði, það var bara gaman, og ég held bara að ég eigi eftir að ná þessu blessaða fagi, ég geri mitt besta allavega. Já svo í vikunni byrjaði svona kynningarvika, þá koma allir og kynnast og kennarar eru að kynna okkur fyror námsefninu, líst bara vel á þessa kennara sem ég hef séð og viti menn, þetta eru flest kvenfólk  í kennarastöðunni, hehe, kvenréttindi HA. Skólinn byggist mikið upp úr hópstarfi og þessi vika fer í það að hrista hópinn saman, og gærdagurinn var frábær, og þessi vetur leggst vel í mig, eins og það er búið að segja svona hundrað sinnum, ÞETTA VERÐUR ERFITT ER SKEMMTILEGT, hef ekki trú á örðu.

 

Mín er svo tilbúin í slaginn að hálfa væri, ég er bara til í að takast á við þetta nám, og legg mig alla fram til að fá sem mest og best.

Þannig að elsku vinir mínir þvers og kruss, ekki verða reið ef ég blogga ekki í langan tíma, því skólinn á eftir að taka allann minn tíma, en ef ég sé smugu þá skal ég koma með smá, en ég loaf engu, þannig að þið hafið það gott og gangi ykkur öllum vel í því sem þið takið ykkur fyrir hendi. Ég elska ykkur öll þið eruð öll frábær kiss&knús þangað til næst...........................................................

 

Bæjó  


P.S Hann Magnús Árni litli frændi á afmæli í dag, orðinn 5 ára, TIL HAMINGJU MEÐ DAGINN SÆTI STRÁKUR KISS OG KNÚS

» 5 hafa sagt sína skoðun

31.07.2008 20:43:24 / okra

Loksins komin í frííííí!!!!!!!!!!!!!

 

Jæja gott fólk, ætli það sé ekki kominn tími til að blogga hehe, long time híhí.

 

Það er allt frábært að frétta hjá mér og okkur öllum, síðasta helgi var alveg frábær þá fórum við til Grundarfjarðar á Grundafjarðadaga, vorum í bústað sem Guðni bróðir og Dísa mágkona eiga. Sem sagt mamma og pabbi voru ásamt okkur systkinum og öll börnin okkar, þetta var heljarinnar helgi, mikið gaman, mikið fjör hehe. Föstdagurinn var alveg æði, fenguð frábært veður og krakkarnir fengu að fara á bátinn með Guðna og var alveg geggjað stuð hjá þeim, svo var kíkt í bæinn og þar fengu krakkarnir blöðrur og candyfloss ójjíí þvílík sykurleðja össöss. Svo fóru stelpurnar í fallturn og var ekkert smá gaman að horfa á þær, Amalía hló svo mikið að hún gat ekki öskrað hehe, bara skemmtilegt að sjá.

 

Föstudagskveldið fór svo að hvessa og ekki var nú skemmtilegt að sofa í tjaldi þar sem tjaldið var gjörsamlega komið í andlitið á manni hehe, en þetta var bara stuð, endaði með því að ég og Freyja fórum inn í bústað og komum okkur fyrir á gólfinu hehe, og það var ekki nokkur leið að vekja hann Hilmar hann svaf bara eins og steinn þannig að ég skildi hann bara eftir í rokinu hehe.

 

Á Laugardaginn var svolítið hvasst fram eftir degi en samt var heitt í veðri og við skelltum okkur í bæinn og þar voru Ilmur og Felix að skemmta krökkunum og vakti þau mikla lukku hjá þeim, svo mættu á sviðið eurobandið Regína Ósk og Friðrik Ómar og tóku þau að sjálfsögðu nokkur vel valin eurovision lög og var mikið sungið og dansað með. Svo vildu stelpurnar endilega fara aftur í fallturnin og hvað annað gerir maður en að láta eftir þessum blessuðu börnum hehe, alltaf lætur mar í lægri pokann er það ekki hehe.

 

Svo var haldið í bústaðinn og þar var grillað og fengið sér smá öl, svo tókum við stelpurnar smá göngutúr meðfram vatninu á meðan strákarnir skelltu sér í bátinn,litlu haugarnir hehe. Svo var aftur farið í bæinn um kveldið á bryggjuball og horft á flugeldasýningu, flott sýning fyrir utan að það var alltof bjart hehe. Svo var farið í bústaðinn, krökkunum komið fyrir í háttinn og svo var spjallað og drukkið fram á nótt, bara gaman. Já svo var komið þetta frábæra veður, logn alla nóttina og mar gat sofið vært í tjaldinu.

 

Sunnudagurinn var svo tekinn svona nokkuð snemma, krakkarnir fóru á bátinn á meðan mar var að ganga frá og pakka niður, en vá þvílíkur hiti sem var, mar var í svitamóki að pakka niður tjaldinu, össöss en hafðist fyrir rest, svo var brunað heim, þetta var alveg yndisleg helgi og allir skemmtu sér vel.

 

Jæja svo er kominn 31.júlí, jájá mín er loksins komin í sumarfrí og ekki nóg með það, mín er bara alveg hætt í þessari blessaðri vinnu, fjúkk hvað ég er fegin að vera hætt þarna var alveg búin að fá nóg, nú tekur smá ferðalag við og svo styttist í skólann, ég er farin að hlakka til að byrja í skólanum, er svo tilbúin í slaginn, ég ákvað að hætta við íbúðina uppá velli og ætla bara vera hérna í minni íbúð og gera það sem þarf að gera fyrir hana og svo er aldrei að vita nema mar reyni að selja hana og fá sér stærra hús. Hver veit nema að það gerist einn daginn.

 

Minns ætlar að skella sér í Skagafjörðinn á morgun og stoppa í einhverja daga, og að sjálfsögðu ætlar mín að skella sér á sveitaball með honum Geira mínum, besti vinur minn hehe. Hlakka bara til að komast aðeins í sveitina og hlaða batteríin.

 

Svo er bara aldrei að vita nema mar skelli sér bara alla leið vestur á Ísafjörð til að hitta tengdó, það fer allt eftir hvernig landið liggur.

 

Jæja þetta er alveg orðinn ágætur pistill í bili er það ekki.

 

Hafið það rosalega gott um versló krakkar mínir, gangið hægt um gleðinnar dyr.

 

Þangað til næst...........................................................

 

Bæjó    


» 5 hafa sagt sína skoðun

07.07.2008 11:57:59 / okra

Sól og blíða

Sæl veri þið.

Strákurinn minn á bara afmæli í dag, hann er 1árs litli Pjakkurinn minn til hamingju sæti litli hvutti minn.

Já svo á hann Svenni minn afmæli í dag 21 árs í dag kjellinn, TIL AMINGJU MEÐ DAGINN KISS OG KNÚS

Jæja mín er búin að vera hugsa og hugsa, held barasta að ég sé hætt við þessa íbúð upp á velli, nenni ekki að standa í einhverjum fluttningum, svo bara tými ég ekki að fara úr íbúðinni minn, hef ákveðið að reyna búa til pláss fyrir okkur öll og var aðeins byrjuð í gærkveldi, gat ekki sofið þannig að mín vakti til 2 í nótt að færa til húsgögn og þurrka af, ógó dugleg hehe.

Svo var mín að taka baðherbergið í gegn, var orðið svolítið subbó, svo skellir mar sér í sturtuna og fer svo út á safn fyrir pabba gamla, ágætt að gera eitthvað annað en að hanga heima, annars er alveg nóg að gera hjá mér hehe.

Jæja hafið það gott í blíðunni í dag, og þangað til næst.................

bæjó

» 8 hafa sagt sína skoðun

06.07.2008 14:56:22 / okra

Afmæli afmæli

Hrefna mín á afmæli í dag, orðin 27ára kjellan
TIL HAMINGJU ELSKU BESTA VINKONA MEÐ DAGINN.
Verðum að fara hittast miss u kiss kiss.

Svo á hann siggi litli frændi afmæli líka í dag, 14 ára gamall, til hamingju með daginn Siggi minn.

Allt gott að frétta hjá minni, er með smá bakþanka með íbúðina upp á velli, vonandi næ ég sáttum við sjálfa mig.

11 vaktir eftir hér í vinnunni, get ekki beðið eftir að losna héðan, er alveg búin að fá ógeð af þessari flugstöð, þrái svo heitt að komast í frí.

Hef þetta ekki lengra í bili hafið það gott þangað til næst.........................

bæjó

» 0 hafa sagt sína skoðun

04.07.2008 18:50:15 / okra

Komin með íbúð á vellinum

 

Jamm mín er þokkalega léleg að blogga þessa dagana, en jæja svona er þetta bara hehe.

 

Það er víst kominn júlí og vá hvað ég hlakka til þegar þessi mánuður er búinn því þá kemst mín loksins í frí, er farin að telja niður vaktirnar, á sem sagt 13 vaktir eftir og get ekki beðið, djö hvað ég orðin þreytt á þessari blessaðri flugstöð, bara orðin leið og þreytt á að vakna alltaf kl.4, svo er vinnuaðstaðan alltaf að versna, nú er búið að taka af okkur eftirlitin um byggingarnar og stjórnstöðin, þannig að það er ekki mikið eftir, aðeins vopnaleitin og skimun lestrarfarangurs, bara þreytt að vinna bara á tveimur póstum, en hlakka bara til að hætta og leggjast yfir skólabækurnar, ég er svo tilbúin í slaginn og ætla ég sko að standa mig í náminu.

 

Ég ákvað að sækja um íbúð upp á velli og datt svo sem ekki í hug að ég fengi neina þar sem biðlistinn var orðin ansi langur, en viti menn ég fékk íbúð og er mín búin að skrifa undir samninginn, en ef ég næ ekki að leigja mína íbúð út þá held ég að ég hætti við að flytja því ekki hefur mar efni á að borga af tveimur íbúðum, þannig að ef einhver vantar íbúð endilega hafið samband.

 

Íbúðin mín er á góðum stað á suðurnesjum nánara tiltekið í Garðinum, gott að ala upp börn hérna,rólegt og gott sveitafélag, en eins og allsstaðar annarsstaða má alltaf gera gott betur. Já íbúðin skiptist í 2 svefnherbergi, baðherbergi með baði, eldhús, ágætis stofa og þvottarhús, gott geymslusvæði þar inni, þvottvélin og ísskápurinn fylgir með leigunni þannig að ef einhver hefur áhuga endilega látið mig vita.

 

Annars er bara svona þokkalegt að frétta hjá mér, þrái bara að fara komast í frí, stelpurnar farnar norður til pabba síns og verða þar út mánuðinn, svo síðustu helgina í júlí ætlum við að skella okkur til Grundarfjarðar á Grundafjarðadaga og vera þar með mömmu og pabba og systkynum og börnum, það verður bara gaman hlakka bara til hehe.

 

Jæja ég ætlaði svo sem ekkert að hafa þetta langt núna en þið hafið það gott þangað til næst...........................................

 

bæjó


» 0 hafa sagt sína skoðun

17.06.2008 13:17:46 / okra

Hæ hó jibbý jei og jibbý jei það er kominn 17.júní

TIL HAMINGJU MEÐ DAGINN KÆRU ÍSLENDINGAR.:haha:

Alveg magnað að mar skuli alltaf þurfa vinna þegar eitthvað er um að vera:evil:, sit hérna í vinnunni að drukkna í kvefi, hefði átt að vera bara heima í dag undir sæng:s, burr burr mér er bara búið að vera kalt í dag, ótrúlegt hvað samviskan nagar mann alltaf þegar mar er veikur:whut:, alltaf finnst manni mar vera svíkja vinnunna þegar veikin bankar hjá manni:$, af hverju er þetta svona hjá manni???:frown:

Jæja ætlaði bara að fá smá útrás á þessu hehe, en kæru landar eigið góðan og frábæran dag í dag:d og njótið sólarinnar og blíðunnar8) á meðan ég hangi hérna inni og reyni að gera eitthvað að viti hehe.

Þangað til næst...........................

bæjó

» 2 hafa sagt sína skoðun

15.06.2008 11:49:02 / okra

GARÐURINN 100 ÁRA Í DAG

TIL LUKKU MEÐ DAGINN GARÐBÚAR:haha:

GARÐURINN BÚINN AÐ STANDA Í HEILA ÖLD OG ER ENN AÐ VAXA OG DAFNA. ÞAÐ ER GOTT AÐ BÚA Í GARÐINUM OG FRÁBÆRT AÐ ALA BÖRNIN SÍN UPP HÉRNA, EN ÞAÐ MÁ ALLTAF GERA GOTT BETRA, ÆTLA EKKI AÐ FARA TELJA ÞAÐ UPP NÚNA ÞAR SEM ALLIR FAGNA ÞESSUM MERKA DEGI Í DAG.

KL.10 Í MORGUN VAR AFHJÚPUÐ MYND AF BIRNI FINNBOGASYNI OG AF HENNI ÖMMU MINNI SIGRÚNU ODDSDÓTTUR, VAR FJÖLDINN ALLUR AF FÓLKI OG VAR BARA KÁTT Í HÖLLINNI HEHE.

KL.11 VAR SVO AFHJÚPUÐ STYTTA SEM KALLAST SKYNJUN, EN ÞAÐ LISTAVERK SÝNIR OFURHÁA KONU SAMSETTA ÚR MÖRGUM KONUM OG ER TÁKNRÆNT FYRIR ALLAR ÞÆR KONUR SEM UM ALDIR HAFA HORFT TIL HAFS OG BEÐIÐ EIGNMANNA OG SONA.

SVO Í HÁDEGINU VERÐUR HITTINGUR Á NÝJALANDI Í SÚPU OG BRAUÐ, GAMAN AÐ HITTA ALLA ÆTTINGJANA, LANGT SÍÐAN MAR HEFUR SÉÐ ALLA EN ÞAÐ VORU NOKKUÐ MARGIR SEM KOMU Í MORGUN.

SVO VERÐUR EINHVER DAGSKRÁ EFTIR HÁDEGIÐ, ÆTLI MAR REYNI EKKI AÐ KÍKJA Á ÞETTA ALLT SAMAN, KEMUR Í LJÓS, SVO KOMA STELPURNAR MÍNAR HEIM Í KVELD HLAKKA BARA TIL.

JÆJA LÆT ÞETTA GOTT HEITA Í BILI HAFIÐ ÞAÐ GOTT ÖLL SÖMUL.ÞANGAÐ TIL NÆST.....................................

BÆJÓ

» 1 hafa sagt sína skoðun

13.06.2008 09:48:09 / okra

ÉG Á AFMÆLI Í DAG!!!!

ÉG Á AFMÆLI Í DAG, ÉG Á AFMÆLI Í DAG ÉG Á AFMÆLI SJÁLF ÉG Á AFMÆLI Í DAG HÍHÍ

VÁ MÍN BARA ORÐIN 27 OG ÉG ER POTTÞÉTT Á ÞVÍ AÐ ÉG FÉKK EINA HRUKKU Í NÓTT HEHE.

bÚIN AÐ FÁ ÞESSA FLOTTU GJÖF FRÁ KALLINUM, MYNDAVÉL ÉG ER EKKERT SMÁ ÁNÆGÐ MEÐ ÞAÐ. TAKK ELSKU HILMAR MINN FYRIR GJÖFINA HÚN ER ÆÐI KISS OG KNÚS ÉG ELKSA ÞIG.

JÆJA ÆTLA AÐ NJÓTA DAGSINS TIL FULLS OG TAKK FRÁBÆRU VINIR FYRIR ALLAR KVEÐJURNAR ELSKA YKKUR ÖLL.

» 2 hafa sagt sína skoðun

07.06.2008 18:41:23 / okra

Afmæli og Ameríkuferð!!!

 

Styttist í afmæið mitt, vá mar er bara að verða 27 ára, tíminn líður alltof hratt, ungarnir mínir eru að nálgast unglingsárin og gelgjuna hehe, Amalía verður 10 ára í desmber og Freyja litla barnið mitt orðin 7 ára. Ótrúlegt hvað þetta líður, mér finnst eins og það hafi gerst í gær þegar ég átti þær hehe.:d

 

Það er bara allt gott að frétta á þessum bæ, allir hressir og kátir að vanda, eftir viku þá verður haldin stór afmælishátíð hér í Garðinum en þá verður sveitafélagið 100 ára hvorki meira né minna, heil öld liðin síðan Garðurinn var til, bara gaman að því, það verður eitthvað um húll og hæ næstu helgi.:lol:

 

Ég var að taka það saman í dag að ég á 27 vaktir eftir og svo er mín komin í sumarfrí og svo bara hætt, hlakka bara til að komast í smá frí og njóta þess að vera með stelpunum mínum og svo tekur skólinn við og verður það nú aldeilis mikil vinna þá, en ég hlakka bara til að takast á við námið.:haha:

 

Nú ætlum við mæðgur að fara safna fyrir ameríkuferð næsta sumar8), Sibba vinkona er að fara flytja út og ætlum við að skella okkur í heimsókn til hennar og reyna að vera í einhvern tíma, verðum að vera ofboðslega sparsamar og taka frá einhverja aura fyrir fluginu og gjaldeyri, svo mar geti nú verlsað eitthvað þarna hehe, en þetta er allavega stefnan hjá okkur núna og stelpurnar strax orðnar spenntar fyrir ferðinni.:haha:

 

Svo styttist í brúðkaupið þeirra Jónu og Símonar og hún bauð Amalíu og Freyju að vera blómastelpur, vá þær voru ekkert smá ánægðar með það, þetta verður æðislegt brúðkaup og stelpurnar verða ofboðslega fínar í gulum sumarkjólum, ógó sætar. Brúðkaupið verður 12.júní á afmælisdegi Jónu, svo verður smá veisla heima hjá mömmu hennar og svo rjúka þau upp á flugvöll og beint til sólarstrandar í brúðkaupsferð, verða þar í 2 vikur og tveim dögum eftir heimkomu verður þessi svaka brúðkaupsveisla hjá þeim, þetta er svolítið spes hjá þeim enda á brúðkaup ekki alltaf að vera eins, mér finnst þetta bara snilld hjá þeim og þetta verður rosa flott og gaman, en það er einn vandi hjá mér þennan dag, sem sagt 28.júní, það er sólseturshátíð hér í Garðinum þessa helgina og þá verður eitthvað húll um hæ út á Garðskaga, svo er okkur Hilmari boðið í brúðkaup hjá Jóhönnu  ‘’systir hans’’ sem sagt dóttir Gullu sem býr með pabba hans Hilmars sem byrjar kl.16:00 og svo er veislan hjá Jónu og Símoni kl.19:00 þetta verður bara púsluspil sem ég reyni að púsla eins og ég get best, langar að vera á öllum stöðum hehe, það verður allavega þétt dagskráin hjá mér þennan dag.;)

 

Jæja ætla ekki að hafa þetta lengra, hafið það sem allra best og hugsið vel um hvert annað. Þangað til næst...........................................................

 

Bæjó

 

p.s. Já í dag er 7.júní og Jórunn okkar heitin hefði orðið 27 ára, elsku Jórunn til hamingju með daginn og megir þú hvíla í friði og vaka yfir okkur öllum. Við söknum þín rosalega mikið. Kiss og knús

 

Og Ingibjörg Erla þú átt afmæli á morgun 8.júní og óska ég þér til hamingju með daginn á morgun, kiss og knús til þín frá okkur. :haha:


» 2 hafa sagt sína skoðun

03.06.2008 12:53:21 / okra

Mikið gaman mikið fjör

 

Sæl veri þið!!

Æ hvað ég er léleg að blogga, það er bara búið að vera nóg annað að gera en að sitja fyrir frama tölvuna og skrifa eitthvað niður, svo er ég bara voða löt við það.

Það er svona ágætt að frétta hjá mér, sumarið er bara komið og mar bíður eftir því að komast í frí sem verður reyndar ekki fyrr en  1.ágúst og þá er ég líka hætt því þá fer mín í baráttuna uppí Keili og reyni að virkja heilann eitthvað hehe.

Amalía mín er komin í sumarfrí og gekk henni bara rosalega vel í prófunum fékk yfir 8 í flest öllu, frábær árangur hjá henni.  svo kemur hún til mín á morgun og hlakka ég bara til að fá hana, en hún stoppar stutt til að byrja með því það er svo mikið að gera hjá henni, helgina 13.-15.júní verður fiðlunámskeið hjá henni þannig að hún þarf að fara aftur norður en svo kemur hún bara aftur eftir þá helgina og stoppar þá í einhverja daga, ætla að hafa hana fram yfir sólseturshátíðina sem fram fer helgina 27.-29.júní, þá verður bara glens og gaman. Reyndar þessa helgina er mér boðið í tvo brúðkaup og einhvernveginn verð ég að reyna púsla 28.júní saman svo ég komist nú í báðar veislurnar.

Já hún Jóna mín er að fara gifta sig 12.júní og það er sko búið að vera fjör ú kringum það hehe, æ samt það má ekki gera mikið grín af þessu en ég verð að segja ykkur frá. Þannig var nú það að hún var búin að panta sér brúðarkjól frá Flatey(einhver flott kjólabúð þar sem hún fann á netinu) hún fékk kjóla til sín til að máta og sendi þá aftur og svo var farið að sauma þennan dýrgrip sem sagt í ameríku, hann var tilbúinn í lok apríl og beið alltaf eftir sendingunni, svo liðu dagarnir og ekkert gerðist, alltaf var hún að hringja og senda e-mail til að athuga með kjólinn svo bara fyrir viku síðan fékk hún þær leiðindar fréttir að kjóllinn væri týndur, öll sendingin  sem sagt týndist  og var ég í heimsókn hjá Jónu þegar hún fékk fréttirnar og vorum við báðar í sjokki, við ákváðum þá bara að skutlast í bæinn og finna kjól þar sem voru bara tvær vikur í brúðkaupið, fórum í 4 brúðakjólaleigu r og fundum þar tvo fallega kjóla, en ákváðum að slaka aðeins á og sofa á þessu, þannig að við fórum aftur daginn eftir til að skoða þessa kjóla aftur og var annar þeirra fyrir valinu, vá hún Jóna var gullfalleg í kjólnum, algjör prinsessa, en það var líka svo mikill léttir að finna kjól svona fljótt og konan sem afgreiddi okkur var alveg yndisleg og sá strax hvaða kjóll hentaði henni, frábært, æðislegt.

Svo varð náttúrulega að gæsa skvísuna, við tókum síðasta laugardag í það, vorum komnar til hennar um hádegi og dressuðum hana upp og gáfum henni rósarvín í glasið, svo tók Thelma systir hennar við og fékk að leika sér  aðeins í hárinu á henni og varð hún hið glæsilegasta hehe túperuð og flott. Svo var haldið niður í bæ þar sem við keyptum handa henni banana og orkudrykk bara svona til að halda henni gangandi, við skelltum henni upp á næsta hringtorg létum hana dansa fugladansinn og hlaupa nokkra hringi og svo tók mín armbeygjur og stóð sig bara vel hehe, svo lá leiðin í Lífsstíl og þar var hún látin púla á hlaupabrettinu í nokkrar mínútur, hún stóðst það líka með príði. Svo var farið aftur niður í bæ, keypt var eitt rósabúnt og hún látin selja rósirnar sem voru nú hálf dauðar og svo hl´jop hún um allt, stoppaði bíla og fólk á gangi og náði bara að selja allar rósirnar og kom út úr gróða hehe en hún náði samt að glata þeim gróða í spilakassa á ránni hehe og hún sem sagðist vera svo heppin í spilakössum,ekki var að sjá hehe. Hún fékk svo það verkefni að safna 10 símanúmerum og gerði gott betur en það og fékk 11 númer, svo týndi hún númerunum alveg ótrúleg hehe, en þetta var bara allt í rólegheitunum og var hún farin að finna aðeins á sér, þannig við fórum með hana heim og sögðum henni að leggja sig í svona klukkutíma, því seinna um kveldið var svo þetta frábæra staffapartý, þar hittumst við staffið og grilluðum gómsætt lambakjöt og kjúlla og vá hvað þetta var góður matur, svo var drukkið, spjallað og sungið, bara gaman.

Skólaslitin eru hjá henni Freyju í dag og hlakka ég til að sjá hvernig henni gekk í prófunum, svo ætlar mín bara að skella sér í garðvinnu og slá blettinn og reyna gera eitthvað sætt í kringum húsið.

Jæja ætli ég hafi þetta nokkuð lengra í dag, ágætur pistill þetta hehe. Hafið það gott og hugsið vel um hvort annað, þangað til næst..................................................

bæjó


» 0 hafa sagt sína skoðun

17.05.2008 10:07:27 / okra

Freyja orðin 7 ára

 

Góðann daginn allir saman.

 

Ég hef nú ekki mikið að segja frá þessa dagana, það hefur voða lítið gerst hjá mér. Er bara byrjuð að vinna á fullu og reyni að hugsa um heimilið þess á milli.

 

Þessa dagana er ég búin að vera undirbúa afmælisveislu handa henni Freyju minni, en litla barnið mitt er orðin 7 ára skvísa8|, þarf að hafa veisluna í hollum hehe, var með bekkjarafmæli í gær og tókst það bara nokkuð vel, það var nokkuð þurrt úti þannig að ég gat hent öllum út í smá leiki:haha:, bara gott mál hehe, svo fengu allir að koma inn horfa á eina mynd og fengu ís og popp með, svo fóru allir heim og mar var bara eftir sig má segja hehe, en þetta var bara gaman:d.

 

Svo í dag er round 2, þá koma vinir og ættingjar og fullorðnafólkið kemur svo seinnipartinn, þannig að það verður fjör hér á bæ í dag:lol:.
Er búin að vera mjög dugleg í bakstri, eins og ég hata bakstur, ekki alveg í uppáhaldi hjá mér, hef aldrei fundist gaman að baka, en mar gerir það náttúrlega fyrir svona stórafmæli hehe;).

 

Annars er allt annað gott í fréttum, allir eru heilsuhraustir og ánægðir með lífið. Svo vinnur mín bara út júlí og fer í sumarfrí áður en mín sest á skólabekkinn í haust8|.

 

En elskurnar mínar hafið það sem allra best og munið að njóta lífsins til fulls og ekki gleyma fólkinu í kringum ykkur, þau eru mikilvægari en þið haldið:d.

 

Þangað til næst.......................................................

 

bæjó


» 4 hafa sagt sína skoðun

06.05.2008 18:39:17 / okra

Rigning,rigning

 

Komiði sæl og blessuð öll sömul.

 

Það er víst kominn maí og aðeins 9 dagar þar til hún Freyja mín verður 7 ára gömul. Vá hvað tíminn flýgur, litla barnið mitt er orðin svo stór að ég má ekki lengur segja litla stelpan mín þá verður mín bara fúl hehe, en já svona gengur þetta bara, ungarnir okkar vaxa víst og stækka og á endanum fljúga þeir úr hreiðrinu snökt snökt:cry:.

 

Annars er bara allt gott að frétta á þessum bæ, nú er mar bara farin að vinna á fullu, haltrandi og hóstandi. Fékk einhvern skít í hálsinn fyrir helgi og er enn að ná þessu úr mér, fékk bara hita og beinverki á laugardaginn og var eins og drusla allan daginn, en ég afrekaði það nú að bera smá áburð á blettinn hjá mér og hreinsaði aðeins í grjótarbeðinu sem er hér meðfram húsinu, ógó dugleg;) hehe.

 

Sunnudagurinn var bara leti dagur:s, aldrei þessu vant þá sat mín bara uppí sófa allan liðlangan daginn og horfi á þó nokkuð marga LOST þætti, dísus kræst mar, djö getur mar verið latur hehe en ég held að þetta sé nú í lagi svona einu sinni í mánuði ekki satt!!!!:)

 

Svo bara vinna vinna framundan hjá minni, Freyja mín fór norður í dag, sauðburðurinn alveg á fullu í sveitinni og auðvitað varð hún að fara og hjálpa til þannig að hún fékk bara frí í skólanum til að fara norður í Skagafjörðinn og hjálpa pabba sínum, æ hún er svo mikil sveitakjelling:haha: hehe, en ég sakna hennar mikið og veit svo ekkert hvað ég á að gera af mér á morgun, er í vaktarfríi og fæ bara að sofa út hehe, kannski ég bara verði dugleg og taki til hérna heima:s, hann Pjakkur er voða duglegur að spora allt út fyrir mér:o, æ ég á svo sætan hund, ég verð að fara taka myndir af honum svo ég geti nú sýnt ykkur hann, hann er algjör gullmoli þessi elska, en voða óþekkur þegar hann er skilinn eftir einn heima, þá bara krafsar hann og nagar það sem er næst honum, óþekktarormurinn:frown: hehe. En hann er alveg æðislegur og algjör mömmustrákur, eltir mig út um allt, stundum get ég ekki þverfótað fyrir honum gjörsamlega límdur við lappirnar á mér hehe.

 

Það er búið að vera leiðindarveður hér í dag og í gær eða síðan á sunnudaginn, rigning rigning rigning og verður það næstu daga:whut:, æ það er svo sem gott að fá smá bleytu, gott fyrir gróðurinn, mar verður nú að vera örlítið jákvæður og bjartsýnn, það hefur allt einhvern tilgang ekki satt!!!;)

 

Fóturinn er allur að koma til;), get samt ekki ennþá verið í lokuðum skóm, er alltaf í þessum fínu sandölum í vinnunni, þó svo að það sé bannað en mín er á undanþágu liggaliggalá :haha:hehe, bara næs að vera í opnum skóm þarna uppfrá.

 

En allavega þá eru bara allir hressir og kátir hér og vonandi er það sama með ykkur hin. Verið nú dugleg að kommenta hjá mér og sendið mér smá línu. En þangað til næst....................................

 

bæjó


» 1 hafa sagt sína skoðun

28.04.2008 17:04:33 / okra

Alveg að koma maí hehehehehe

 

Voðalega er mín léleg að blogga þennan mánuð hehe, apríl að verða búinn og maí nálgast óðfluga.

 

Jæja best að segja ykkur aðeins hvað á daga mína hefur drifið, apríl er bara búin að vera svona þokkalegur, fór að vinna 16.apríl eftir aðgerðina en það var nú kannski einum of snemmt því mín bólgnaði bara upp og komst ekkert í vinnu daginn eftir, og var svo bara róleg yfir þá helgi og reyndi eins og ég gat að ná bólgunni niður, svo mætti mín galvösk til vinnu á mánudaginn og var það bara allt í lagi, og svo þriðjudagurinn var þokkalegur en var virkilega þreytt og illt í fætinum, þannig að mín tók sér svo langt frí eftir það hehe.

 

Skrapp norður síðasta miðvikudag og var sko nóg að gera í sveitinni, tók múttu með mér enda hafði hún jafn gott af því og ég að skreppa í sveitina og hlaða batteríin. Byrjuðum á að bruna upp í Varmahlíðarskóla og rétt náðum henni Amalíu áður en hún hélt heim með skólarútunni, og var gaman að sjá svipinn á henni þegar hún sá okkur, æ það var svo gott og æðislegt að sjá og faðma stóru stelpuna sína, guð hvað ég sakna hennar, mar er ekki enn búin að venjast þessu að hún sé hinum megin á landinu, en svona er þetta bara.

 

Já þann dag voru þessu fínu vortónleikar hjá tónlistarskólanum, Amalía spilar á fiðlu og þverflautu og var ég svo stolt af henni því hún spilar alveg glimrandi vel og alltaf gaman að hlusta á hana spila. En hún er búin að gefast upp á flautunni og ætlar sér næsta vetur að skella sér á harmonikkuna hehe bara gaman að því, en hún ætlar að halda sig við fiðluna enda búin að standa sig rosalega vel á henni, ætli endi með því að hún taki svo bara við af Kristínu kennara þegar þar að kemur hehe. Vonandi.

 

Þetta var alveg frábært hjá öllum krökkunum og stóðu þau sig alveg frábærlega öll sömul, alveg yndislegt að sjá hvað það eru margir krakkar í tónlist þarna í sveitinni,æðislegt.

 

Sumardagurinn fyrsti var heldur betur skemmtilegur dagur, þá var 1.-6.bekkur Varmahlíðarskóla með þessa frábæru árshátíð í íþróttahúsinu í Varmahlíð, vá ég held að ég hafi bara aldrei farið á eins skemmtilega árshátíð í mörg ár, þau stóðu sig alveg frábærlega og ofboðslega gaman af þeim öllum, það var mikil stemmning í salnum og tóku allir undir í söng og dansatriðunum, mikið klappað og mikið hlegið, vá ég bara táraðast liggur við eftir hvert atriði þetta var svo æðislegt hjá þeim. Svo var boðið upp á kaffi í skólanum á eftir og myndaðist löng röð eftir göngum skólans, bara stemmning og bara gaman þar á bæ.

 

Föstudagurinn var líka frábær, skóladagur og allir í skólann nema ég Freyja og mútta, þannig að við ákváðum að skreppa upp í skóla í smá heimsókn, fengum kaffi í eldhúsinu(Sólrún systir er að vinna þar) og svo fengum við Freyja að kíkja inn í tíma hjá Amalíu, við hittum svona vel á að þau voru öll að fara lesa upp verkefni sem kallast ‘’hver er ég’’ æ hvað var gaman að hlusta á þessa skemmtilegu krakka sem sögðu í stuut máli hver þau voru og hvaðan þau væru og svo framvegis, ég mátti alveg passa mig að fara ekki grenja þegar Amalía las, því þegar þú koma að þeim hluta sem var skemmtilegast hjá henni, ,,að fara og hitta mömmu’’ þá fékk ég bara kökk í hálsinn og mátti alveg passa að hún sæji ekki tárin hehe, mín er voða viðkvæm fyrir svona hlutum hehe, en þetta var alveg frábært hjá þeim öllum og bara gaman að hlusta á þau.

 

Svo brunuðum við Freyja aðeins í sveitina og kíktum í til Amýar ömmu þeirra og ef þið bara vissuð þá lendir mar alltaf í fermingarveislu þar á bæ, þar aldeilis mikið af tertum og bakkelsi alla daga, mar fer ekki þaðan svangur ó nei, þaðan fer engin nema vera búinn að sprengja sig út af kökum og gúmmilaði hehe, alltaf gott að kíkja í sveitina. Svo er sauðburðurinn byrjaður og nóg að gera á þeim bænum, stelpurna eru svo duglegar að hjálpa pabba sínu, algjörar sveitastelpur hehe.

 

Svo leið helgin bara í rólegheitum, mín kíkti í heimsókn til Sillu kjellu og var mikið spjalla og hlegið, æ alltaf gaman að hitta hana Sillu hún er svo yndisleg persóna og góð vinkona, love u Silla mín. Og já svo hitti ég hana Hrefnu mín, alltaf gaman að hitta hana, tókum nokkra rúnta á Króknum og þá hófst fíflalætin eins og alltaf, endalaust gaman alltaf með henn Hrefnu minn, Hlakka til að sjá þig þegar þú kemur suður, vonandi hittumst við eitthvað oftar, love u Hrefna mín.

 

Jæja svo brunuðum við heim á sunnudaginn eftur gómsætan grillmat hjá Sólrúnu og Jóa,   grillaða folaldið klikkar aldrei og svo ísinn í eftirrétt, nammi namm. Takk kærlega fyrir okkur Sólrún mín, alltaf gott að koma til ykkar.

 

Jæja læt þetta gott heita í bili, vonandi þreytist þið ekki á að lesa þennan fína pistil hehe.

Hafið það gott og þangað til næst................................................................

 

Bæjó


» 4 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 15
Heimsóknir
Í dag:  22  Alls: 64468
Klukkan
Dagatal
febrúar - 2012
S M Þ M F F L
1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829
FyrriNæsti
Talning
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 1143 dögum
Aðfangadagur
Könnun
á ekki kjellan eftir að ná prófunum??


Bílasölur